Dell P skjáir eru hannaðir til að passa í flest vinnurými. Þessir gríðarlegu vinsælu skjáir koma í fjölmörgum útgáfum, stærðum og gerðum. Allt frá stöðluðum háskerpuútgáfum á góðu verði að 4K útgáfum með snertimöguleika. P línan er þekkt fyrir langan líftíma og að passa vel í umhverfi þar sem tengja þarf marga skjái við eina vél. Dell Professional er hinn fullkomni vinnufélagi þegar koma þarf hlutunum í verk.
Sjáðu úrvaliðDell Conference skjáirnir eru stórir og sérstaklega hannaðir fyrir fundarherbergið og sem upplýsingaskjáir. Þeir sýna texta betur en hefðbundin sjónvörp í sömu stærð og þola einstaklega mikla notkun. Þeir fást í stærðum frá 55“ upp í 85“ og einnig með snertimöguleika. Deildu öllum smáatriðum með Conference skjá.
Sjáðu úrvaliðFyrir þá sem gera kröfur dugir ekkert annað en Dell UltraSharp. Þessi frábæra lína samanstendur af sérstaklega skörpum skjáum sem skila einstaklega réttum litum. U línan er hugsuð fyrir vinnslu þar sem smáatriði skipta máli og er hún sérstaklega vinsæl meðal mynd- og myndbandavinnslufólks. Upplifðu myndina eins og hún á að vera með Dell UltraSharp.
Sjáðu úrvaliðDell Studio skjáirnir henta sérstaklega vel fyrir afþreyingu og leikjaspilun. Þeir eru hugsaðir fyrir kröfuhörð heimili og koma í þónokkrum útgáfum. Mikið er lagt upp úr útliti og gæði skjáanna svo þeir taki sig sem best út á hvaða heimili sem er. Njóttu Dell gæða í hverju sem þú tekur þér fyrir hendur með Studio skjá.
Sjáðu úrvaliðEssential línan er að öllu leiti eins og Professional línan nema að því leiti að standurinn sem fylgir er ekki hæðarstillanlegur. Þetta gerir línuna að sérstaklega hagkvæmum kosti og hentuga fyrir aðstæður þar sem t.d á að festa skjái á aðra standa eða vegg.
Sjáðu úrvaliðDell skjáir hafa hlotið fjöldamörg verðlaun fyrir áreiðanleika og gæði. Fjögur ár í röð hefur Dell verið útnefnt fyrirtæki númer eitt í framleiðslu skjáa í heiminum í úttekt Worldwide PC Monitor Tracker. Mörgum fylgir Dell Premium Panel ábyrgð og allir eru framleiddir úr eins umhverfisvænum efnum og völ er á. Þeir uppfylla allir Energy Star vottun og eru framleiddir án eiturefna eins og arsenik og PVC. Að auki eru skjáirnir prufaðir langt fram yfir þær aðstæður sem skjáir kynnast venjulega til að tryggja að líftíminn verði sem allra lengstur.
Sjáðu úrvaliðDell framleiðir á fjórða tug mismunandi skjáa. Hægt er að fá línur sem eru hannaðar fyrir stofuna, skrifstofuna og allt þar á milli. Sumir eru einfaldir og ódýrir, aðrir með mikilli tækni sem skilar sérstaklega góðri mynd, raunverulegum litum og jafnvel snertimöguleika. Advania býður upp á skjái úr öllu litrófinu og hægt er að sérpanta í flestar aðstæður.
Sjáðu úrvaliðSérsniðnar lausnir fyrir fyrirtæki
Advania er stoltur söluaðili Dell á Íslandi. Sölusérfræðingar okkar geta farið yfir þarfir hvers og eins og komið með frábærar heildarlausnir. Ekki hika við að hafa samband við teymið okkar til að finna út hvaða skjáir henta þér.