Turnþjónar (e. tower server) eru hannaðir til að standa einir og sér.
Þeir henta sérstaklega inn í vinnurými þar sem þeir eru meðfærilegir og hljóðlátir.
Rekkaþjónar (e. rack servers) eru hugsaðir fyrir aðstæður þar koma þarf mörgum þjónum fyrir. Þeim er raðað í skápa og taka þannig minna pláss.
Þetta er sérstaklega sveigjanleg lausn þar sem auðvelt er að bæta við þjónum eftir hentisemi.
Blaðþjónum (e. blade servers) er raðað saman í svo til gerða hýsingu sem gefur þeim straum og stýringu. Um leið og uppsetningin er sérstaklega einföld, gefur þetta möguleika á að koma mörgum þjónum fyrir á litlu svæði og um leið sparast orka.
Sjá útfærslumöguleika