Í XPS línunni koma málamiðlanir ekki til greina. Hvort sem um ræðir minnstu 13,3“ vél í heimi, kraftmikla 15“ útgáfuna eða hina frábæru 2-in-1. Allar gerðir eru vandlega smíðaðar úr heilu álstykki og koltrefjum, sem gerir Dell XPS vélarnar einstaklega léttar og sterkar. Láttu XPS koma þér á óvart og sjáðu hvað er mögulegt.
Dell Latitude er til staðar þegar koma þarf hlutum í verk. Línan er sérhönnuð fyrir vinnuumhverfið og kemur í mörgum öflugum útgáfum sem henta flestum fyrirtækjum.
Meiri afköst og minna vesen með Latitude.
Dell Precision býður upp á mikla frammistöðu í fjölbreyttu formi. Vélarnar eru sérstaklega hannaðar með þunga vinnslu í huga og henta sérstaklega vel í grafíska hönnun, þung reiknilíkön og kvikmyndagerð. Möguleikarnir eru miklir auðvelt er að finna vél hentar best í verkið. Öllum vélum í línunni fylgir Dell Precision Optimizer sem stillir vélina svo hún aðlagist öllum helstu vinnsluforritum. Þannig er hægt að auka frammistöðu forrita um allt að 121%.
Sjáðu úrvalið
Dell Inspiron línan er hönnuð með einstaklinga í huga og hentar flestum. Fjölbreytileiki einkennir línuna sem býður allt frá nettum netbókum á góðu verði til öflugra 2-in-1 fartölva sem einnig eru spjaldtölvur. Sama hvaða kröfur þú gerir, Inspiron svarar þeim með stæl.
EliteBook eru vandaðar tölvur frá HP sem hannaðar eru fyrir vinnumarkaðinn.
Vélar sem henta sérstaklega vel í almenna skrifstofuvinnu. Þær eru með Windows Professional og hannaðar til að endast.
Oft hagkvæmari vélar þar sem meira er lagt upp úr upplifun í tölvuleikjum og áhorfi efnis.
Fartölvulínur sem hannaðar eru sérstaklega fyrir þyngri vinnslu. T.d grafíkvinnslu, mynd- og myndbandavinnu, þung reiknilíkun o.sfrv.
Sérsniðnar vélar fyrir fyrirtæki
Advania er stoltur söluaðili Dell og HP á Íslandi. Sölusérfræðingar okkar geta farið yfir þarfir hvers og eins og komið með frábærar heildarlausnir. Ekki hika við að hafa samband við teymið okkar í vefspjallinu eða með því að bóka frían fund og við finnum hvaða fartölvur henta þér.