Aukahlutir fyrir tölvur
Hljóð & mynd
Töskur
Hljóð og mynd
Jaðar- og raftæki
Hugbúnaður
Rekstravörur og kaplar
Netbúnaður
Gagnageymslur og íhlutir
Miðlægar lausnir
Fjarfundalausnir
Fjarvinnulausnir
Dell rakar að sér verðlaunum í kjölfar CES
12.1.2018
Vörur sem kynntar voru á CES hlutu gríðarlega góðar viðtökur.
Nú þegar CES er að klárast er heldur betur gaman að líta til baka og sjá alla skemmtilegu hlutina sem kynntir voru. Við erum sérstaklega ánægð með þá spennandi tækni sem Dell sýndu í Las Vegas þetta árið. Viðbrögðin hafa heldur ekki látið á sér standa og viðurkenningarnar farnar að streyma inn.
Nýja Dell XPS 13 var til að mynda valin besta fartölvan af Laptopmag. Þetta virta tímarit sem sérhæfir sig í fartölvum, valdi einnig XPS 15 2-in-1 bestu 2-in-1 tölvuna. Ef það var svo ekki nóg, völdu þeir Dell Mobile Connect sem besta hugbúnaðinn á sýningunni! Fólkið hjá Laptopmag kann greinilega gott að meta.
Eins og við nefndum í vikunni hlaut Dell sérstök Innovation verðlaun fyrir verkefni sem helgað er endurvinnslu á plasti. Að auki hlutu Dell Advanced 4K laser skjávarpinn, nýja XPS 13 fartölvan og 34“ Alienware sveigði leikjaskjárinn frumkvöðlaverðlaun þetta árið.
Tæknitímaritið The Verge völdu XPS 15 2-in-1 bestu fartölvuna á sýningunni og Digital Trends gáfu bæði henni og XPS 13 sérstakt heiðursæti yfir vélar sem vert er að kaupa. PC Mag völdu svo XPS 15 bestu 2-in-1 vélina.
Að lokum má svo nefna að tímaritið Videomaker valdi XPS 13 sem bestu ferða-vinnustöðina fyrir myndbandavinnslu.
Við hreinlega ráðum okkur ekki yfir viðbrögðunum í bransanum og það er víst að biðin eftir að þessum nýju spennandi vörur verður erfið. Við bíðum spennt eftir að fá vörurnar í sölu seinna á árinu og flytjum auðvitað fréttir af því um leið og þær berast.
440 9000
Guðrúnartúni 10
105 Reykjavík
kt. 590269-7199 (VSK-nr. 10487)
Advania á Facebook Advania á TwitterAfgreiðslutími
9-17 virka daga
Borgartúni 28
105 Reykjavík
8-16 virka daga
Tryggvabraut 10
600 Akureyri
Innskráning í vefverslun
Er lykilorðið týnt? Við getum bjargað því. Skráðu netfangið þitt hér fyrir neðan og við sendum þér póst um hæl.