Dell Precision er síðasta orðið í öflugum vinnuvélum. Vélarnar eru hugsaðar fyrir umhverfi þar sem miklar kröfur eru gerðar vegna þungrar vinnu; svo sem grafíska hönnun, þung reiknilíkön og kvikmyndagerð. Úrvalið í Precision línunni er viðamikið og auðvelt að sníða sér stakk eftir vexti. Öllum vélum í línunni fylgir Dell Precision Optimizer sem stillir vélina svo hún aðlagist öllum helstu vinnsluforritum. Þannig er hægt að auka frammistöðu forrita um allt að 121%. Ekki hika við að hafa samband við sérfræðinga okkar til að finna öfluga vél sem hentar þér.
Sjáðu úrvaliðDell Optiplex eru hannaðar fyrir skrifstofur af öllum stærðum og gerðum. Vélarnar fást í mörgum stærðum og gerðum og því einstaklega auðvelt að finna tölvu sem hentar þínu umhverfi. Línan samanstendur af fjórum frábærum lausnum, allar hannaðar til að vera eins hentugar og öruggar og kostur er.
Sjáðu úrvaliðDell Inspiron línan er frábær lína af vélum sem hugsaðar eru sérstaklega fyrir heimilin. Þær eru mikið uppfæranlegar og bæði til sem hefðbundnar og Allt í einni. Mikið geymslupláss, hraði og áreiðanleiki gerir Inspirion að frábærri lausn fyrir heimilið. Hvort sem í leik eða starfi.
Sjáðu úrvaliðDell XPS er hönnuð til að svara hörðustu kröfum og hentar því sérstaklega vel fyrir tölvuleiki og þunga vinnu. Vélarnar eru einstaklega öflugar með sérsniðnum Intel örgjörvum og Nvidia skjákorti svo þung grafísk vinna verður bókstaflega leikur einn. Ekki skemmir heldur fyrir að XPS styður VR sýndarveruleika sem færir upplifunina í nýjar hæðir.
Sjáðu úrvaliðAlienware er af mörgum talinn toppurinn í leikjavélum í heiminum. Þær eru sérstaklega byggðar í verkið með öflugum skjákortum, nýjustu örgjörvum og miklu vinnsluminni. Fyrir utan að þær eru auðvitað þrælflottar!
Alienware turnar eru einstaklega uppfæranlegir og engin hætta á að ný tækni í tölvuleikjum stingi þá af.
Margur er knár þótt hann sé smár. Optiplex Micro vélarnar eru búnar nýjustu kynslóð Intel örgjörva og því enginn skortur á afli. Á sama tíma eru þær einstaklega litlar sem þýðir að plássleysi er engin fyrirstaða. Einnig er hægt að fá margskonar festingar fyrir Optiplex Micro sem er kjörið til að koma tölvu á staði þar sem það þótti jafnvel ómögulegt.
Skoða í vefverslunBorðleggjandi þegar koma þarf hlutunum í verk. Optiplex borðvélar eru kraftmiklar, hannaðar fyrir mikla vinnu og mikið uppfæranlegar. Hægt er að tengja allt að þrjá skjái beint við vélarnar til að fá góða yfirsýn yfir vinnuna. Allt í pakka sem fer lítið fyrir og passar vel á skrifstofuna.
Skoða í vefverslunUmturnaðu þeim eins og þú vilt. Dell Turntölvur eru einstaklega hentugar fyrir þá sem kjósa fullkominn sveigjanleika. Hægt er að uppfæra og sníða vélarnar að kröfum notandans. Hvort sem það er vinnsluminni, diskaplássi eða skjákorti.
Skoða í vefverslunMeð allt á hreinu og Allt í Einni. All in One vélarnar hafa skapað sér miklar vinsældir á stuttum tíma. Vélin sjálf er innbyggð í glæsilegan skjáinn sem þýðir að snúruflækjur og flóknar uppsetningar heyra sögunni til.
Skoða í vefverslunSérsniðnar vélar fyrir fyrirtæki
Advania er stoltur söluaðili Dell og HP á Íslandi. Sölusérfræðingar okkar geta farið yfir þarfir hvers og eins og komið með frábærar heildarlausnir. Ekki hika við að hafa samband við teymið okkar í vefspjallinu eða með því að bóka frían fund og við finnum hvaða borðtölvur henta þér.