Aukahlutir fyrir tölvur
Hljóð & mynd
Töskur
Hljóð og mynd
Jaðar- og raftæki
Hugbúnaður
Rekstravörur og kaplar
Netbúnaður
Gagnageymslur og íhlutir
Miðlægar lausnir
Fjarfundalausnir
Fjarvinnulausnir
Einn stærsti tölvuframleiðandi í heimi bætir enn einni skrautfjöðrinni í hattinn með TCO vottun í sjálfbærni.
TCO er sjálfbærnivottun sem búið er að veita í 25 ár. Með því að hljóta TCO vottun, sýna tæknifyrirtæki fram á að allt kapp sé lagt á að framleiðsla þeirra sé sjálfbær og umhverfisvæn. Reglulega er gefin út ný útgáfa af vottuninni með þrengri skorðum, harðari skilyrðum og kröfum sem nær komast því sem Sameinuðu Þjóðirnar hafa sett sem framtíðarmarkmið.
8. kynslóð þessarar eftirsóttu vottunar var gefin út í desember og einungis handfylli af fyrirtækjum uppfylltu skilyrðin. Eitt af þessum fyrirtækjum er að sjálfsögðu okkar menn hjá DELL. Þessi kynslóð vottunarinnar setur fókus á framfarir í framleiðslu, hvernig efni eru numin úr jörðu með tilliti til náttúruverndar og hag verkamanna, rafhlöðuendingar og líftíma raftækja.
DELL hefur einbeitt sér að sjálfbærni síðustu ár og því kemur það okkur lítið á óvart að þeir hafi hlotið þessi vottun um leið og hún var gefin út. Mikil vakning hefur orðið um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og æ fleiri taka sína kaupákvörðun eftir því hvort varan hafi verið framleidd í sátt við umhverfi og náttúru. Þess vegna er það ekki bara skynsamlegt að eltast við viðurkenningar sem þessar, það er hreinlega góður „bissness“.
440 9000
Guðrúnartúni 10
105 Reykjavík
kt. 590269-7199 (VSK-nr. 10487)
Advania á Facebook Advania á TwitterAfgreiðslutími
9-17 virka daga
Borgartúni 28
105 Reykjavík
8-16 virka daga
Tryggvabraut 10
600 Akureyri
Innskráning í vefverslun
Er lykilorðið týnt? Við getum bjargað því. Skráðu netfangið þitt hér fyrir neðan og við sendum þér póst um hæl.